Deildarstjóri innheimtu

Seltjarnarnesbær óskar eftir að ráða deildarstjóra innheimtu á fjármálasvið í 100% starf.

Leitað er eftir kraftmiklum og jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni og býr yfir getu til að vinna sjálfstætt.

Starfsstöðin er á bæjarskrifstofum Seltjarnarnesbæjar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

 

Helstu verkefni og ábyr

  • Reikningagerð, innheimta og eftirfylgni þeirra
  • Umsjón með viðskiptamannaskrá og eigendaskrá fasteigna
  • Yfirferð vanskilalista og samskipti við viðskiptavini
  • Svörun fyrirspurna innri og ytri viðskiptavina
  • Utanumhald hitaveituálestra og -mæla
  • Önnur tilfallandi verkefni er tengjast fjármálasviði 

 

Menntun, reynsla og hæfni

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af innheimtu er mikilvæg
  • Bókhaldsþekking er nauðsynleg
  • Góð tölvukunnátta er mikilvæg
  • Þekking á Navision, GoPro og Vigor er kostur
  • Talnagleggni, greiningarfærni og nákvæmni
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 


Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Niðurgreiðsla á hollum og góðum mat í hádeginu
  • Afsláttur á korti í World Class
  • Sundkort á Seltjarnarnesi
  • Bókasafnskort

 

Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2024.

 

Nánari upplýsingar veitir Svava G. Sverrisdóttir, sviðsstjóri fjármála (svavas@seltjarnarnes.is) í síma 5959-100.

 

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um starfið. 

Deila starfi