Félagsleg liðveisla / einstaklingsstuðningur

Fjölskyldusvið Seltjarnarnesbæjar óskar eftir starfsfólki í félagslega liðveislu.

Markmið liðveislu/einstaklingsstuðnings er að veita aðstoð sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun og njóta tómstunda utan heimilis. Einnig að efla einstaklinga til sjálfshjálpar og veita persónulegan stuðning.

 

Hver einstaklingur sem á rétt á liðveislu/einstaklingsstuðningi, fær 12 - 16 klst. á mánuði sem eru útfærðar í samráði við liðveitanda. Hver liðveitandi getur sinnt 1- 3 einstaklingum í einu. Vinnutími er sveiganlegur og hentar því vel þeim sem stunda nám. Bíll til afnota í starfi er æskilegur. Um tímavinnu er að ræða.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Efla einstaklinga til sjálfshjálpar
  • Veita persónulegan stuðning
  • Rjúfa félagslega einangrun

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Umsækjendur þurfa að vera orðnir 20 ára (fædd 2003 eða fyrr)
  • Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Tillitsemi, stundvísi, reglusemi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta

 

Fríðindi í starfi

  • Bókasafnskort
  • Afsláttur á korti í World Class
  • Sundkort á Seltjarnarnesi

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Ólafsdóttir Ásgerðardóttir, netfang: johannao@seltjarnarnes.is

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags.

 

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024.

Deila starfi