Umsjónar- og þemakennsla

Grunnskóli Seltjarnarness auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónar- og þemakennslu (samþætting náttúru- og samfélagsgreina) á unglingastigi.

 

Starfshlutfall er 100% og ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2024.

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast faggreinakennslu og umsjón á unglingastigi í samráði samkennara og skólastjórnendur
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinna eftir uppeldis- og samskiptastefnu skólans, Uppeldi til ábyrgðar
  • Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
  • Skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara
  • Vinna í teymi með öðrum kennurum

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
  • Menntun og hæfni til kennslu á unglingastigi
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Kennslureynsla í grunnskóla æskileg
  • Góð tölvukunnátta
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Faglegur metnaður og áhugi á skólaþróun
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Ánægja af starfi með börnum og unglingum

 

Í Grunnskóla Seltjarnarness eru tæplega 600 nemendur, en hann er rekinn á tveimur starfsstöðvum, í Mýrarhúsaskóla (1.-6. bekkur) og Valhúsaskóla (7.-10. bekkur). Við skólann starfa um 100 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar - uppbyggingu sjálfsaga, sem stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Einkunnarorð hans eru virðing - ábyrgð - vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Lögð er áhersla á samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi. Skólinn er í miklu samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness, félagsmiðstöðina Selið og íþróttafélagið Gróttu.

 

Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.

 

Upplýsingar um starfið veitir Kristjana Hrafnsdóttir skólastjóri kristjana.hrafnsdottir@seltjarnarnes.is í síma 5959200.

 

Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undirseltjarnarnes.is - Störf í boði.

 

Umsóknarfrestur er til og með 3. maí 2024.

Deila starfi