Valhúsaskóli auglýsir eftirfarandi stöður fyrir skólaárið 2025-2026.
Starfshlutfall er 50-100% og ráðið verður í stöðurnar frá 1. ágúst 2025.
Auglýst er eftir kennurum í 50%-100% starfshlutfall í kennslu og umsjón á unglingastigi.
Við erum að leita að:
- stærðfræðikennara
- íslenskukennara
- enskukennara
- dönskukennara
- þemakennara (samþætting náttúrufræði og samfélagsfræði)
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast faggreinakennslu og umsjón á unglingastigi í samráði við samkennara og skólastjórnendur.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Vinna eftir uppeldis- og samskiptastefnu skólans, Uppeldi til ábyrgðar
- Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
- Skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara
- Vinna í teymi með öðrum kennurum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
- Menntun og hæfni til kennslu á unglingastigi
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Kennslureynsla í grunnskóla æskileg
- Góð tölvukunnátta
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Faglegur metnaður og áhugi á skólaþróun
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Bókasafnskort
- Sundkort
Í Valhúsaskóla eru um 240 nemendur í 7. - 10. bekk. Við skólann starfa um 50 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar - uppbyggingu sjálfsaga, sem stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Einkunnarorð skólans eru virðing - ábyrgð - vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Lögð er áhersla á samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi. Skólinn er í miklu samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness, félagsmiðstöðina Selið og íþróttafélagið Gróttu.
Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Upplýsingar um starfið/störfin veitir Svala Baldursdóttir, aðstoðarskólastjóri svala.baldursdottir@seltjarnarnes.is í síma 595-9250.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir seltjarnarnes.is - Störf í boði.
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2025.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2025.