Við þurfum á góðu fólki að halda, að lágmarki 18 ára til að koma til liðs við okkar frábæra hóp! Skólinn státar af metnaðarfullri starfsemi, ýmsum viðbótarkjörum, styttingu vinnuvikunnar og tilboði um námssamninga. Í leikskólanum er lögð sérstök áhersla á tónlist og umhverfismennt.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskóla og/eða framhaldsskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af starfi í leikskóla æskileg er kostur
- Góð íslenskukunnátta og -skilningur er áskilin
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Bókasafnskort
- Sundkort
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.
Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir seltjarnarnes.is - Störf í boði.
Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til og með 30. september2024.
Leikskóli Seltjarnarness er sameinuð fag- og rekstrareining með um 220 börnum. Í skólanum eru 12 deildir á þremur starfsstöðvum, Mánabrekku, Sólbrekku og Stjörnubrekku. Í skólanum er lögð áhersla á að börn fái tækifæri til að hjálpa sér sjálf eftir því sem þroski þeirra og geta leyfir og þau styrkt til sjálfshjálpar í öllum þáttum daglegs lífs. Leikurinn er hornsteinn leikskólastarfsins því samkvæmt hugmyndafræði leikskóla lærir barn mest og best í leik og samskiptum við börn og fullorðna í frjóu og skapandi umhverfi.