Vinnuskóli 30. júní - 17. júlí 2025 - Ungmenni fædd 2010 og 2011

Vinnuskóli Seltjarnarness sumarið 2025

 

Hjá Vinnuskóla Seltjarnarness sumarið 2025 eru unglingar 14-15 ára, fæddir árið 2010 til 2011.

Vinnan felst í umhirðu á gróðurbeðum bæjarins, málun leiktækja, slætti, gróðursetningu sumarblóma og aðstoð inn á stofnunum bæjarins.

 

Starfstími Vinnuskólans er 3 vikur tímabilið 30. júní til 17. júlí 2025.

 

Unglingar fæddir 2010 og 2011 fá vinnu við hreinsunar- og garðyrkjustörf 3,5 tíma á dag 4. daga í viku, mánudaga til fimmtudags.

 

Vinnuskólinn hefst mánudaginn 30. júní á neðangreindum starfsstöðum og vinnutíma. 

  • Unglingar fæddir 2010 mæta 8:30 til 12:00 á Vallarbrautarvöll
  • Unglingar fæddir 2011 mæta 13:00 til 16:30 á Vallarbrautarvöll

 

Vinnuskólinn er reyklaus vinnustaður og er öll notkun nikótíns óheimil. Brot á þeirri reglu varðar brottrekstri.

Deila starfi