Fjölskyldusvið Seltjarnarnesbæjar leitar eftir fólki til að sinna félagslegum innlitum í heimaþjónustu
á heimilum einstaklinga og í íbúðarkjarna á Skólabraut 3-5 Seltjarnarnesi. Vinnutími getur verið í dagvinnu, um kvöld og helgar.
Starfssvið:
· Heimaþjónusta og þrif
· Innlit til íbúa, lyfjagjöf og ýmis aðstoð
Hæfniskröfur:
· Mjög æskilegt er að umsækjendur séu orðnir 20 ára (fædd 2005 eða fyrr)
· Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
· Hæfni til sjálfstæðra vinnubragða og frumkvæði
· Tillitsemi, stundvísi, reglusemi og samviskusemi
· Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi:
· Samgöngustyrkur
· Líkamsræktarstyrkur
· Afsláttur á korti í World Class
· Sundkort á Seltjarnarnesi
· Bókasafnskort
Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.
Bíll til afnota í starfi er nauðsyn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagbjört Lind Orradóttir, dagbjort.l.orradottir@seltjarnarnes.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2025.