Fjölskyldusvið Seltjarnarnesbæjarbæjar óskar eftir fjölskyldum eða einstaklingum til að taka að sér börn, tvo eða fleiri daga í mánuði.
Starf stuðningsfjölskyldna er fjölbreytt og felst í því meðal annars að bjóða barni/börnum að taka þátt í daglegu lífi fjölskyldunnar og tómstundum.
Fyrir barnið er stuðningsfjölskylda hugsuð sem skemmtileg upplifun og tilbreyting og um leið hvíld og stuðningur fyrir forelda og/eða forráðamenn barnanna.
Sótt er um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála https://island.is/studningsfjolskyldur
Frekari upplýsingar gefur Jóhanna Ó. Ásgerðardóttir, Umsjón með málefnum fatlaðs fólks, í síma 595-9100 eða á netfangið johannao@seltjarnaenes.is