Mýrarhúsaskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum einstaklingi í starf deildarstjóra stoðþjónustu (50% starfshlutfall) og sérkennara (50% starfshlutfall).
Í Mýrarhúsaskóla eru um 340 nemendur í 1. - 6. bekk. Við skólann starfa um 60 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar - uppbyggingu sjálfsaga, sem stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Einkunnarorð skólans eru virðing - ábyrgð - vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stýrir daglegu starfi og kennir innan stoðþjónustu skólans ásamt því að sinna starfsmannahaldi þar eins og við á
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Tekur þátt í uppbyggingu öflugrar liðsheildar á vinnustaðnum ásamt stjórnunarteymi
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntun og hæfniskröfur:
- Kennsluréttindi (Leyfisbréf fylgi umsókn)
- Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er kostur
- Kennslureynsla af sérkennslu skilyrði
- Leiðtogafærni og vilji til að byggja upp sterka liðsheild
- Frumkvæði, jákvæðni og brennandi áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
- Góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði í vinnubrögðum og samviskusemi
- Stundvísi og samviskusemi
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Bókasafnskort
- Sundkort
Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Upplýsingar um starfið veitir Kristjana Hrafnsdóttir skólastjóri kristjana.hrafnsdottir@seltjarnarnes.is í síma 5959200.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undir seltjarnarnes.is - Störf í boði.
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2025.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2025.