Bókavörður - hlutastarf

Við leitum að áhugasömum, jákvæðum og þjónustulunduðum bókaverði í hlutastarf á Bókasafni Seltjarnarness.


Vinnutími er 2-3 laugardaga í mánuði (yfir veturinn) frá kl. 11-14.
Stöku afleysingar seinni partinn virka daga þegar þörf krefur.

 

Starfið hentar því mjög vel með skóla fyrir ungmenni á Seltjarnarnesi og gefur möguleika á sumarstarfi.

  • Bókavörður sinnir allri almennri þjónustu við lánþega og gesti safnsins, veitir upplýsingar, ráðgjöf og hefur umsjón með ásýnd safnsins.
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun er mikilvæg sem og tölvufærni.
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti er krafa.
  • Lögð er áhersla á stundvísi, samskiptafærni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Áhugi og almenn grunnþekking á bókmenntum skiptir máli í starfinu.

 

Umsóknarfrestur er til og með 14. janúar nk. og viðkomandi þarf að geta hafið strax störf. Tekið er við umsóknum og starfsferilskrá í gegnum ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.

 

Nánari upplýsingar veitir María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri Þjónustu- og samskiptasviðs Seltjarnarnesbæjar, mariab@seltjarnarnes.is.

 

 

Bókasafn Seltjarnarness er fjölskylduvænt og vinsælt almenningsbókasafn staðsett á Eiðistorgi.

Safnið er enn fremur menningarmiðstöð Seltjarnarnesbæjar þar sem fram fer fjölbreytt menningarstarf og viðburðir.

Upplýsingar um safnið má sjá á seltjarnarnes.is/bokasafn

 

Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um störfin. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Seltjarnarnesbæjar og viðkomandi stéttarfélags.

 

Deila starfi