Iðnaðarmaður

 

Seltjarnarnesbær óskar eftir að ráða iðnaðarmann til starfa í þjónustumiðstöð á Skipulags- og umhverfissviði Seltjarnarnesbæjar.

Starfshlutfall er 100%.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almennur rekstur, umhirða og viðhald á opnum svæðum og fasteignum sveitarfélagsins
  • Minni háttar nýframkvæmdir og ýmis tilfallandi verkefni vegna þjónustu við íbúa, stofnanir og fyrirtæki sveitarfélagsins
  • Umsjón með viðhaldsframkvæmdum og eftirlit með verktökum
  • Uppfærsla og viðhald á ýmsum tækjabúnaði

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í iðngrein er kostur
  • Reynsla af sambærilegu starfi
  • Samstarfs- og samskiptahæfni, þjónustulund og jákvæðni
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Almenn ökuréttindi eru nauðsynleg
  • Almenn íslenskukunnátta er mikilvæg

 

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • kasafnskort

 

Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2026.

 

Umsókn skal fylgja kynningarbréf ásamt námsgögnum og upplýsingum um fyrri störf.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.

 

Öllum umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar -undir http://www.seltjarnarnes.is-Störf í boði.

 

Nánari upplýsingar veita Gunnlaugur Jónasson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs netfang gunnlaugur.jonasson@seltjarnarnes.is og Björn Bögeskov Hilmarsson verkefnastjóri umhverfis- og garðyrkju netfang boddi@seltjarnarnes.is 


Deila starfi