Verkefnastjóri frístunda- og forvarnastarfs, 70-100% starf

Frístundamiðstöð Seltjarnarnesbæjar leitar að öflugum starfskrafti til að sjá um forvarnastarf og sinna frístundastarfi á vegum bæjarins.

 

 

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið

  • Skipulagning og eftirfylgni við forvarnastarf fyrir alla aldurshópa í sveitarfélaginu.
  • Aðkoma að skipulagningu og þátttaka í starfsemi félagsmiðstöðvar og ungmennahúss.
  • Umsjón með starfsemi ungmennaráðs.

 

Menntunar og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tómstundafræðum, uppeldisfræðum eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af störfum með börnum og ungmennum.
  • Samskiptahæfileikar, frumkvæði og skipulagsfærni.

 

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Afsláttur á korti í World Class
  • Sundkort á Seltjarnarnesi
  • Bókasafnskort

 

 

Nánari upplýsingar veitir Baldur Pálsson, sviðsstjóri Fjölskyldusviðs (baldur@seltjarnarnes.is) eða í síma 5959-100.

 

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja á ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar http://www.seltjarnarnes.is-Störf í boði.

 

Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2025.

 

Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um starfið.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.

 

Deila starfi