Frístund - sumarskóli og hlutastörf

Frístundaheimilið Skjólið óskar eftir starfsmönnum, 18 ára og eldri til að starfa við sumarskólann sem hefst 5. ágúst 2025 og er þann mánuð.

Vinnutími í sumarskólanum er frá 08:00 - 16:30.

Eftir sumarskólann tekur við hlutastarf með börnum að skóla loknum, tvo til fimm eftirmiðdaga í viku, frá kl. 13:00 - 16:30.

 

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.

 

Hæfniskröfur

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • Áhugi á að vinna með börnum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Færni í samskiptum.

 

 

Vakin er athygli á að starfið hentar öllum kynjum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.

 

Upplýsingar um starfið veitir Einar Tómas Sveinbjarnarson (einar.t.sveinbjarnarson@seltjarnarnes.is).

 

 

Umsókn ásamt fylgiskjölum (ferilskrá) skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar -undir http://www.seltjarnarnes.is-Störf í boði

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2025.

 

 

Gildi Seltjarnarnesbæjar:

FRAMSÝNI TRAUST VIRÐING JÁKVÆÐNI

 

Deila starfi