Þroskaþjálfi - Mýrarhúsaskóli

Mýrarhúsaskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa eða starfsmanni með uppeldisfræðimenntun.

Starfshlutfall er 100%.

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Aðstoða og þjálfa nemendur í námi og athöfnum daglegs lífs
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Vinna eftir uppeldis- og samskiptastefnu skólans, Uppeldi til ábyrgðar
  • Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
  • Skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara
  • Vinna í teymi með öðrum kennurum

 

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og hæfni til starfa í grunnskóla
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Starfsreynsla í grunnskóla æskileg
  • Góð tölvukunnátta
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Faglegur metnaður og áhugi á skólaþróun
  • Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Ánægja af starfi með börnum

 

Fríðindi í starfi

  • Sundkort
  • Bókasafnskort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • 36 stunda vinnuvika

 

Í Mýrarhúsaskóla eru um 340 nemendur í 1. - 6. bekk. Við skólann starfa um 60 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar - uppbyggingu sjálfsaga, sem stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Einkunnarorð skólans eru virðing - ábyrgð - vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Lögð er áhersla á samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi. Skólinn er í miklu samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness, félagsmiðstöðina Selið og íþróttafélagið Gróttu.

 

Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.

 

Upplýsingar um starfið veitir Kristjana Hrafnsdóttir skólastjóri í netfangið kristjana.hrafnsdottir@seltjarnarnes.is .

 

Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undirseltjarnarnes.is - Störf í boði.

 

Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2024.

Ráðið verður í stöðuna sem fyrst.

 

 

Deila starfi