Valhúsaskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa eða starfsmanni með uppeldisfræðimenntun.
Starfshlutfall er 100%.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Fríðindi í starfi
Í Valhúsaskóla eru um 250 nemendur í 7. - 10. bekk. Við skólann starfa um 50 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar - uppbyggingu sjálfsaga, sem stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Einkunnarorð skólans eru virðing - ábyrgð - vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Lögð er áhersla á samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi. Skólinn er í miklu samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness, félagsmiðstöðina Selið og íþróttafélagið Gróttu.
Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.
Upplýsingar um starfið veitir Helga Þórdís Jónsdóttir skólastjóri í netfangið helgajo@seltjarnarnes.is .
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar undirseltjarnarnes.is - Störf í boði.
Umsóknarfrestur er til og með 10. desember 2024.
Ráðið verður í stöðuna sem fyrst.
Engin laus störf