Leikskólakennari, -liði, Þroskaþjálfi, 50-100% starf

Ungbarnaleikskóli Seltjarnarness - Kríuból

 

Ungbarnaleikskóli Seltjarnarness er sjálfstæð fag- og rekstrareining á vegum Seltjarnarnesbæjar og er staðsettur í Gamla Mýrarhúsaskóla við Nesveg. Hann var stofnaður í júlí 2021 og tók til starfa 1. október sama ár. Leikskólinn heyrir undir skólanefnd bæjarins og er sviðsstjóri fjölskyldusviðs yfirmaður leikskólamála. Í leikskólanum eru nemendur á öðru aldursári til tveggja ára.

Í ungbarnaleikskólanum er lögð áhersla á máltöku og málrækt ungbarna, hreyfingu og útivist. Leikskólinn á í samstarfi við Bókasafn Seltjarnarnes og íþróttafélagið Gróttu.

 

 

Leikskólakennari/þroskaþjálfi/leikskólaliði, 50-100% starf

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennara- eða þroskaþjálfamenntun
  • Starfsleyfi sem leikskólakennari, þroskaþjálfi eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi í leikskóla er æskileg

 

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barna sem yfirmaður felur honum
  • Fylgist vel með velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hver og eins svo þau fái notið sín sem einstaklingar
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar
  • Vinnur náið í samstarfi við foreldra / forráðamenn barnanna
  • Starfa samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er eiga við og aðalnámskrá leikskóla

 

 

Fríðindi í starfi

  • Sundkort
  • Bókasafnskort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • 36 stunda vinnuvika
  • Afsláttur af leikskólagjöldum á Seltjarnarnesi

 

 

Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru öll kyn hvött til að sækja um.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélög.

 

 

Upplýsingar um störf í Ungbarnaleikskóla Seltjarnarness veitir Selma Birna Úlfarsdóttir leikskólastjóri ungbarnaleikskóla, selma.b.ulfarsdottir@seltjarnarnes.is .

Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar -undir http://www.seltjarnarnes.is-Störf í boði

 

Umsóknarfrestur um ofangreind störf er til og með 12. júní 2023.

 

 

 

 

 

 

Deila starfi